Fimm hlutir á fimmtudegi

 

Hefur þú matað Geir Ólafs? Eða látið hann mata þig?

 

Þið megið vera spennt fyrir þessum þætti. Hann jaðrar eiginlega við að vera klám. 

 

 

 

Ó, ég borðaði svo ljómandi fínan tælenskan mat fyrir stuttu. Á Ban Kúnn sem staðsettur er á Völlunum í Hafnarfirði. 1490 krónur fyrir þrjá rétti og þrjú kíló af hrísgrjónum.

 

Ég er tilbúin að keyra til Hafnarfjarðar fyrir það. Já ókei, ég er búin að keyra þangað nokkrum sinnum.

Djúpsteiktu rækjurnar - maður lifandi. Þær má deyja fyrir. 

 

 

Uppþvottavélin í Breiðholti er með stæla. Hér er því snætt af pappadiskum og drukkið úr plastglösum. Sama hvort það eru gestir eða ekki.

 

Vaska upp? Nei. Ekki að ræða það. 

 

 

Ég var að taka til um daginn. Þá sjaldan. Gróf upp leigusamninginn minn sem ég var búin að sannfæra mig um að væri í gildi til 1.október 2014. Ó, heldur betur ekki. Ég á að vera búin að yfirgefa Breiðholtið í næstu viku.

 

Eftir talsverðar hjartsláttartruflanir og 400 árangurslaus símtöl í leigusalann vissi ég hvað beið mín. 

Forsíða DV - ,,Býr í 15 ára gömlum Yaris." Ég var búin að þræða hverja einustu auglýsingasíðu og ekkert. Jú, sturtulaus íbúð í miðbænum á 100.000 - ,,sundlaug í næsta nágrenni." Ég ætti ekki annað eftir. Ég þoli ekki sundlaugar. Frekar þvæ ég mér með þvottapoka í aftursætinu á Yaris. 

 

Jæja. Þetta fór betur en á horfðist. Í bili. Ég smjaðraði örlítið. Samingurinn rennur því ekki út fyrr en 1.nóvember. 

 

Ég ætla að finna mér mann sem á fasteign fyrir þann tíma. 

 

 

Þarna er afkvæmið staðsett alla daga. Alltaf. 

 

Jæja. Ég á rauðvínslögg í þessum ágæta ísskáp síðan um síðstu helgi. Það er best að svolgra henni í sig sem snöggvast.

 

Heyrumst.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún Veiga

Höfundur

Guðrún Veiga Guðmundsdóttir
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir

Ég heiti Guðrún Veiga. Ég er mamma, mannfræðingur, matarperri, múltítasker, nautnaseggur, naglalakkari og rauðvínssvelgur.

Þú finnur bloggið mitt hérna: gveiga85.blogspot.com

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7559
  • IMG_7558
  • IMG_7537
  • IMG_7532
  • IMG_7515

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband