Súpa á sunnudegi

 

Ég eldađi alveg stórkostlega súpu á ţessu annars gráa sunnudagskvöldi. Mig langar ađ skrifa ađ ég sé agaleg súpukona. En ég fć útbrot ţegar ég kalla mig konu. Súpustelpa - nei ţađ virkar ekki. 

Ég er mikill súpuađdáandi - segjum ţađ bara. 

 

Ég tók fáar og lélegar myndir ţar sem súpan var ekki ćtluđ sem bloggefni. Ó, svo smakkađi ég. Himnesk alveg hreint og myndavélin rifin upp í snarhasti.

 

Kókos & karrýnúđlusúpa


4 hvítlauksgeirar

2 matskeiđar smátt saxađ engifer

2 matskeiđar rautt karrýmauk

2 matskeiđar kókosolía

1 dós kókosmjólk

2 kjúklingateningar

1 líter af vatni

 

1 lítill rauđlaukur

1 gul paprika

1 rautt chilli

2 sellerístilkar

 

2 pakkar skyndinúđlur

salt og pipar

 

Saxiđ hvítlaukinn og engiferiđ smátt. Blandiđ ţví vel saman viđ karrýmaukiđ og kókosolíuna. Ţađ er sennilega best ađ nota töfrasprota en ég nennti ómögulega ađ skíta hann út.

 

Leysiđ kjúklingateningana upp í vatninu. Helliđ olíu í pott og steikiđ karrýblönduna viđ vćgan hita í 1-2 mínútur. Helliđ kjúklingasođinu út í og kókosmjólkinni ţar á eftir. Látiđ suđuna koma upp og smakkiđ til međ salti og pipar. 

 

Smelliđ grćnmetinu í pottinn og leyfiđ ţví ađ malla dálitla stund. Núđlunum skellt út í og ţćr látar sjóđa í 2-3 mínútur. 

 

Voilá - unađslega góđ og fljótleg súpa.

 

 

 

 

 

 

Kannski ekki fögur yfirlitum en hún var góđ. Sver ţađ. Ţađ hefđi nú veriđ lekker ađ skreyta hana međ ferskum kryddjurtum. En nei. Ég tímdi ekki ađ kaupa ţćr. 

 

Heyrumst.



« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Guðrún Veiga

Höfundur

Guðrún Veiga Guðmundsdóttir
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir

Ég heiti Guđrún Veiga. Ég er mamma, mannfrćđingur, matarperri, múltítasker, nautnaseggur, naglalakkari og rauđvínssvelgur.

Ţú finnur bloggiđ mitt hérna: gveiga85.blogspot.com

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_7559
  • IMG_7558
  • IMG_7537
  • IMG_7532
  • IMG_7515

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband